Hver erum við?
BlueShroom media er framsækin stafræn auglýsingastofa sem sérhæfir sig í stafrænni markaðssetningu. Okkar markmið er að búa til og birta efni sem stuðlar að sýnileika fyrirtækja á helstu vef- og samfélagsmiðlum. Við mælum árangur markaðsherferða og tökum upplýstar ákvarðanir um framhaldið í samvinnu við þig. Einn af helstu kostum stafrænnar markaðssetningar er að geta skilgreint markhópa og beint auglýsingum á þá sem hafa sýnt vörunni eða þjónustunni áhuga.
Fyrirtækið var stofnað árið 2023 og er samsett af sérfræðingum á sviði stafrænnar- hönnunar og markaðssetningar.
Við hvetjum þig til að hafa samband og kynna þér málið betur. Við veitum persónulega og góða þjónustu. Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina og birtu auglýsingar þar sem flestir sjá.